{

af hverju

vefafritun?

Það er staðreynd að gögn á netþjónum og tölvum eru viðkvæm fyrir ýmiskonar hættum. Diskar geta gefið sig, vírusar valdið skaða og gagnagrunnar skemmst. Einnig er algengt að tölvum sé hreinlega stolið eða verði eldsvoða eða vatnsleka að bráð. Þannig geta öll verðmætin horfið í einu vetfangi. Séu afritunarmálin ekki í öruggum farvegi getur endurheimt þessara verðmætu gagna orðið mjög kostnaðarsöm og tímafrek, eða jafnvel ómöguleg.

Vefafritun er ný og betri afritunaraðferð

 

Vefafritun er einföld og örugg leið til að vernda gögn þíns fyrirtækis. Afrit er tekið með öruggum og sjálfvirkum hætti yfir internetið og geymt á öruggum stað í gagnamiðstöð fjarri frumgögnunum (sem aftur er afritað á þriðja staðinn). Ef þú lendir í vandræðum með gögnin þín, þá ertu örugg(ur) um að geta endurheimt þau með einföldum hætti. Þrátt fyrir augljósa kosti Vefafritunar er þessi aðferð mun ódýrari en hefðbundnar afritunaraðferðir. Skráðu þig fyrir prufuaðgangi og fáðu tilboð í afritunina hjá okkur. Þú munt komast að sömu niðurstöðu.